Fréttir

Ég held það sé kominn tími á fréttir, svo haldið ykkur fast, þetta verður langt blogg!!

Það hefur ýmislegt gerst síðan ég lét heyra í mér síðast, ekkert merkilegt svosem, svo ekki verða of spennt, ég hef bara verið hundlöt að blogga :)

Þakkargjörðin kom og fór frekar leiðinleg, við fórum til tengdó sem hefur ekki nokkurn hæfileika til að plana eitt eða neitt og það hjálpar ekki að maðurinn hennar er stórskrítinn og hundleiðinlegur hehe! En allavega maðurinn hennar Elliot krefst þess hverja einustu hátíð að reykja kalkún nema hvað, engum í fjölskyldunni finnst kalkúninn hans góður! Mamma Jeffs, Jodi, gerir hinsvegar mjög góðan kalkún og þar sem hún veit það þá gerir hún líka kalkún! Nema hún var of sein með sinn svo það var bara reykti kalkúninn á borðunum! Pfffttt, svo hálf lélegur matur, illa skipulagt o.s.frv.

Hvolpurinn okkar stækkar og stækkar, hann er kominn upp í heilt kíló! En hvert sem hann fer þá vekur hann mikla athygli! Við fórum t.d. með hann í hvolpasprautur í síðustu viku og stúlkan á afgreiðsluborðinu fór með hann baksvæðis til að sýna öllum dýralæknunum hann! við varla fengum hann til baka! Svo í dag, þá í vinnunni vorum við að kynna okkur fyrir fyrirtækjunum sem vinna með okkur, smá markaðsátak svo ég ákvað að taka litla hvolpinn minn með til fyrirtækisins sem ég fór til!! Við slógum í gegn!! Um leið og við komum inn um dyrnar flyktust allir að Kesslik sem var algjörlega að fýla athyglina sem hann fékk!

Jeff er að fara í atvinnuviðtal í næstu viku svo krossleggja putta, tær, fætur og hendur og annað sem hægt er að krossleggja! Vonandi fær hann þessa vinnu en þetta er hjá Tölvutæknifyrirtæki eða hvenrig sem IT þýðist yfir á íslensku, ágætlega launað og ekkert sérlega langt frá þar sem við búum! Svo ef hann fær vinnuna þar, get ég farið að versla aftur!!

Talandi um að versla, ég var í 5 daga fríi í síðustu viku svo daman ákvað að vera snemma í því og verslaði fullt af jólagjöfum til að senda til Íslands. Ég keypti voða mikið af sætu dóti pakkaði því niður og fór með það út á pósthús. Þegar þangað var komið heimtuðu þeir $300 dollara fyrir sendingakostnað!!!! Ég held það hafi liðið yfir mig af hneykslun og Jeff þurfti að draga mig út þar sem ég varð alveg brjál!! Magga hafði líka sent mér dót fyrir börnin hennar sem ég ætlaði að senda henni, og þeir heimtuðu $90 dollara fyrir bara þá pakka!! Hvað er málið!! Svo ef einhver fær pakka frá okkur, þá verða það litlir pakkar sem passa í umslag!

Ég var ekkert smá stolt í gær, ég fór á gallerýið mitt  og komst að því að ég hafði selt tvær ljósmyndir eftir mig!! Vá ekkert smá hissa, kannski smá aukapeningur fyrir jólin!! En nei nei, ég er komin 89 sent í gróða!! heheh það er c.a. 50 krónur íslenskar hehehehe Ekkert smá stolt!

 Við fórum í skrúðgöngu seinasta föstudag sem heitir Parade of Lights, það virkar þannig að ýmis fyrirtæki, íþróttastöðvar, dansstöðvar o.s.frv. eru með sitt svæði í göngunni þar sem þau búa til mikið skreyttan pramma, þannig það er mikil ljósadýrð, stemming, risa blöðrur og fleira í þeim dúr! Það var rosa gaman að fara þangað, en þú situr á hliðarlínunni og bíður eftir að allir prammarnir fara framhjá! Það var auðvitað skítakuldi, en það var allavega 5-10 stiga frost hehe, en við létum okkur hafa þetta, sannir víkingar! (hinir urðu víkíngar í minni nærveru).

Að öðru leiti þá er bara allt gott að frétta af okkur, við erum bæði hraust, hress og njótum lífsins bara heima með kisunni okkar og hundi. Við skreyttum íbúðina um daginn, keyptum jólatré og gerfisnjó úr bómul undir þar sem hvolpurinn okkar pissar á það og étur það upp hvort sem er, þannig við ákváðum að fara ódýrt! Ekki nóg með það heldur er hans takmark virðist vera að éta tréð fyrir jólin! Svo af og til komum við að honum að reyna að naga tréð, sem er frekar fyndin sjón þegar hundur á stærð við rottu er að reyna að takast á við 2 metra tré! heheh Þess á milli elta þau Líf og Kesslik hvort annað svo þeim virðist vera farið að semja betur, þau leika sér allavega saman.

Jæja ég held ég hafi ekkert meira að segja sem stendur, svo ég læt þetta duga þangað til næst!!

Kveðja úr Ameríkunni!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ sæta,

þetta amazon rugl virðist vera leyst. ég þurfti að panta annan pakka sem ég lét senda til þín og þú átt að fá í dag eða á morgun. meira vesenið... argh...

svo bara setur þú þetta í lítinn fínan kassa fyrir mig og sendir sem jólagjöf, er það ekki? :) vona að það kosti nú ekki 90 dollara að senda þetta svo til alndsins, það væri bara bjánalegt.

well well.. við heyrumst

Lella

Lella (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 12:08

2 identicon

Hæhæ, gaman að heyra hvað þið hafið það gott. Vona að allt gangi áfram vel.  Bið að heilsa kallinum, hundinum og kettinum, kveðja frá klakanum, Agla Marta

Agla Marta (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 14:42

3 Smámynd: Vala Björk Vieregg

Ég athugaði póstinn í gær þegar ég kom heim og það var ekkert þá, ég kem til með að athuga aftur í dag og á morgunn svo vonandi þetta kemur heim fyrir jól :)

Vala Björk Vieregg, 6.12.2007 kl. 19:18

4 Smámynd: Vala Björk Vieregg

Gaman að heyra í þér Agla Marta!! Ég fylgist alltaf reglulega með ykkur á síðu dóttir þinnar!! Við biðjum innilega að heilsa til baka!

Vala Björk Vieregg, 6.12.2007 kl. 19:18

5 identicon

GUÐ MINN GÓÐUR! Hvað hundurinn þinn er mikil krúttsprengja JESÚS!! Mér finnst svo stutt síðan minn var svona ótrúlega lítill og léttur en svo er mér litið í þessum töluðu orðum niður á gólf þar sem liggur við sófann sem ég sit í, orðinn 17 kg. púki, allt of feitur sem hrýtur og rekur við!

alman (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 22:52

6 identicon

Sæl stelpa mín. en spennandi að Jeff sé að far í atvinnuviðtal ´´oska honum alls hins besta með það.Já kesslik sem fær alla athygli núna hehe   hvað segir sú gamla við því? Til lukku með seldu myndirnar af Galleríinu..Hafið það svakalega gott  ..ástarkveðja  mamma

mamma (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 19:33

7 identicon

Hæ hæ, lengi lifi völu blogg. 

Finnst alveg stórskemtilegt ad lesa bloggid thitt. Svo endilega halda áfram.  Kossar og knús. Magga Salla

Bid ad heilsa Jeff og gangi honum vel i atvinnuvidtalinu!

Magga Salla (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 07:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband