Fékk Útborgað

Vúvú fékk loksins útborgað í dag, bara degi seinna en þeir áætluðu, ég átti að fá útborgað seinasta Föstudag, síðan var okkur sagt að við ættum að fá útborgað á Þriðjudag en peningurinn kom loksins inn í dag. Meira skítafyrirtækið sem ég vinn fyrir. Þeir sönnuðu það í dag þegar það kom í ljós að þú þarft að ávinna þér inn veikindadaga þetta ár, það þýðir að í Janúar á ég 3 klst sem ég get verið veik, en í lok Desember átti ég 72 stundir eftir af 80. Ég tapaði þeim þar sem þeir rúlla ekki yfir á nýja árið. Hérna er meira kerfi sem gjörsamlega er atvinnuveitendanum í hag og fyritækið mitt er að nýta sér það algjörlega!
 
En allavega, fékk útborgað í dag, svo kemur það í ljós eftir eina og hálfa viku hvort þeir standi við að borga á tíma þá. Ef ekki þá mætir daman ekki í vinnu fyrr en hún fær útborgað og Hananú!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Baráttukveðjur frá klakanum. Vona þið hafið það sem allra best þrátt fyrir leiðindavesenismál.

kv,

AM

Agla Marta (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 10:19

2 Smámynd: Vala Björk Vieregg

Takk Takk, fyrirtækið mitt náði að borga nokkra reikninga svo ég vona að það þýði að Rússneski fjárfestinn gekk í gegn hehe.

Vala Björk Vieregg, 18.1.2009 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband